Samtök um mannvæna tækni sinna fræðslu og rannsóknum sem leggja áherslu á að hönnun, þróun og notkun tækni fylgi siðferðilegum viðmiðum sem setja velferð notenda, náttúru og samfélags í heild í forgang fram yfir einkahagsmuni og skammtímaávinning.

Greinar

Málefni

1

Félagsleg og sálræn heilsa

Sömu tækniframfarir og hafa gert okkur kleift að tengjast, ræða og leysa alþjóðleg vandamál á áður óþekktum skala, eru einnig nýttar til að græða á athygli okkar. Þetta getur leitt til ávanabindandi stafrænnar hegðunar, minnis- og athyglisvandamála, einmanaleika og almennrar aftengingar frá samfélaginu. Fjarlægðin og nafnleyndin sem algrímsstýrð stafræn rými byggjast á ala óneitanlega á hatri, neteinelti og stöðugum félagslegum samanburði.

2

Upplýsingaöryggi og lýðræði

Í heimi þar sem upplýsingar ferðast á ljóshraða án nokkurra takmarkana er nauðsynlegt að skapa nýjar væntingar og viðmið til að vernda trúverðugleika upplýsinga og lýðræðisleg gildi. Algrímsstýrðir bergmálshellar og sjálfvirk sögufölsun stýrir því hvernig við kjósum, deilum, tölum saman og tökum ákvarðanir. Þrátt fyrir að við höfum tæknigetuna til að skapa beint útópískt lýðræði, þá hvetja óforskömmuð viðskiptamódel frekar til meiri aftengingar og sundrungar en áður hefur sést, þar sem línurnar á milli sannleika og tilbúnings verða sífellt óljósari.

3

Óheft tækniþróun

Sama nútímatækni og gerir okkur kleift að flýta öllum ferlum flýtir einnig öllum alþjóðlegum áhættum sem teknar eru. Við verðum að bregðast skjótt við ógnum sem stafa af afskiptalausri gervigreind, aukinni sjálfvirkni og algrímshlutdrægni, áhrifum mannskyns á lífríkið og vaxandi efnahagslegum ójöfnuði í heiminum. Það sem meira er, vaxandi valdaójafnvægi í heiminum eykur hættuna á því að þeir sem hafa aðgang að nútímatækni á borð við gervigreind og líftækni noti hana í hernaðarlegum tilgangi.

Viðburðir

Eldri viðburðir

Feb 26, 2025 18:30

☀️ Solarpunk - symbols, images, and myths

hafnar.haus

Feb 9, 2025 23:55

AI governance course registration deadline

Jan 25, 2025 15:00

Gervisiðferði - hver mun eiga gildin okkar?

Borgarbókasafnið Grófinni

Jan 15, 2025 19:00

Kynningarfundur

hafnar.haus

Jun 12, 2024 17:30

Gervigreindarkaffi

KEX hostel

May 16, 2024 17:30

Bókaklúbbur: Surveillance Capitalism or Democracy?

Hús máls og menningar, Laugavegur 18

Mar 4, 2024 12:00

AI governance course application deadline

Gróska, Bjargargata 1

Feb 27, 2024 16:45

Smásmiðja: stafræn hreinsun

Borgarbókasafnið

Feb 15, 2024 17:00

Mannvænt kaffi

KEX hostel

Fólkið

Gamithra Marga
Gamithra Marga →

Meðstofnandi

Halldóra Mogensen
Halldóra Mogensen →

Stofnmeðlimur

Samtökin voru stofnuð árið 2023. Í stjórn félagsins sitja Atli Þór Jóhannsson, Gamithra Marga og Aþena Ýr Ingimundardóttir.

Samtökin halda opna skipulagsfundi hálfsmánaðarlega. Nánari upplýsingar um innra skipulag samtakanna má finna á Slack.

Slack rás →