Umsögn Samtaka um mannvæna tækni um drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla

Samtök um mannvæna tækni fagna því að stjórnvöld leitist við að bæta námsumhverfi, vellíðan og félagsleg tengsl barna og ungmenna. Við teljum hins vegar mikilvægt að stefnumótun á þessu sviði byggi á traustum gögnum og skýrum rökstuðningi.

Í 3. gr. reglugerðardraganna kemur fram að markmið reglugerðarinnar sé meðal annars að skapa námsfrið, auka vellíðan og félagsleg tengsl nemenda, styðja við einbeitingu og frammistöðu, og efla jákvæðan skólabrag.

Ný íslensk rannsókn, Adolescent mental health outcomes and screen use before and after school phone restrictions in Iceland: A population-based difference-in-differences analysis (Bonilla Aparicio o.fl., 2026), byggð á tæplega 24.000 svörum frá nemendum í 70 grunnskólum, fann hins vegar engar marktækar vísbendingar um að símabönn bættu geðheilsu, vellíðan, félagslegan stuðning, einelti, neteinelti eða skjánotkun meðal ungmenna.

Mikilvægt er að undirstrika að rannsóknin skoðar einmitt þá breytingu sem reglugerðin lögfestir. Samanburðarskólarnir takmörkuðu almennt símanotkun í kennslustundum en leyfðu notkun í frímínútum, á meðan bannskólarnir innleiddu bann á símanotkun allan skólatímann. Rannsóknin metur því áhrif þess að færa sig frá takmörkunum í kennslu yfir í heildarbann yfir skóladaginn, sem er kjarni reglugerðarinnar.

Að mati Samtaka um mannvæna tækni vekur þetta upp mikilvægar spurningar um á hvaða gögnum reglugerðin byggir og hvernig ráðuneytið metur líklegt að hún nái þeim markmiðum sem henni eru sett. Sérstaklega í ljósi þess að markmið reglugerðarinnar eru að verulegu leyti sömu útkomur og rannsóknin skoðaði sérstaklega án þess að finna marktæk áhrif.

Við teljum því mikilvægt að áður en reglugerðin tekur gildi liggi fyrir:

  • skýr greinargerð um þann rannsóknarlega og fræðilega grunn sem reglugerðin byggir á,
  • mat á því hvernig fyrirliggjandi rannsóknarniðurstöður samrýmast markmiðum hennar,
  • og áætlun um hvernig áhrif reglugerðarinnar verði metin með kerfisbundnum hætti eftir innleiðingu.

Jafnframt teljum við ástæðu til að skoða hvort markmið reglugerðarinnar verði betur náð með víðtækari og markvissari aðgerðum sem taka á stafrænu umhverfi barna í heild sinni, svo sem fræðslu um ábyrga tækninotkun, eflingu félagslegra samskipta, forvörnum gegn einelti og öðrum gagnreyndum aðgerðum sem styðja við vellíðan barna og ungmenna. Rannsóknarhöfundar benda sjálfir á að símabönn ein og sér séu ólíkleg til að skila verulegum árangri nema sem hluti af stærri heild.

Ákvarðanir sem hafa áhrif á daglegt líf barna og ungmenna eiga að byggja á bestu fáanlegu gögnum. Þegar ný og umfangsmikil íslensk rannsókn bendir til þess að það tiltekna inngrip sem reglugerðin lögfestir skili ekki þeim ávinningi sem henni er ætlað að skila, teljum við mikilvægt að stjórnvöld geri grein fyrir forsendum sínum og tryggi að stefnumótun á þessu sviði sé gagnreynd, gagnsæ og mælanleg.

Viltu vera með?

Skráðu þig hér að neðan og við sendum þér nánari upplýsingar um starfið og látum þig vita af næstu viðburðum.